KVENNABLAÐIÐ

Hinn al-íslenski 3. vinningur gekk út

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Vikinglotto en tveir heppnir Norðmenn skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hvor um sig rúmar 35 milljónir króna í vinning.

Hinn al-íslenski 3. vinningur gekk einnig út og var það heppinn miðahafi sem keypti miða sinn í N1 á Ártúnshöfða í Reykjavík sem hlaut vinninginn. Fær hann rúmar 3,5 milljónir króna í sinn hlut.

Fjórir voru með fjórar tölur réttar í réttri röð í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir á eftirtöldum sölustöðum; N1 á Ísafirði, Krambúðinni á Flúðum, N1 á Borgarnesi og á N1 í Vestmannaeyjum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!