KVENNABLAÐIÐ

Tveir með hinn al-íslenska 3.vinning

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Víkingalottó en heppinn Norðmaður var einn með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 35 milljónir króna. Hinn al-íslenski 3. vinningur gekk einnig út en tveir spilarar skiptu honum á milli sín og hlýtur hvor þeirra 1.695.660 krónur í vinning, miðarnir voru keyptir í Loppu á Fáskrúðsfirði og Happahúsinu, Kringlunni, Reykjavík.

Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Happahúsinu, Kringlunni, Reykjavík, N1 á Höfn, Mosó grilli, Mosfellsbæ, Lotto.is og tveir á lotto-appinu.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!