KVENNABLAÐIÐ

Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum

Enginn var með 1. vinning í Lottó í kvöld og verður potturinn því 2faldur í næstu viku.  Sex miðahafar voru með bónusvinninginn og hlýtur hver þeirra rúmlega 71 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Bjarnabúð, Brautarhóli á Selfossi, á heimasíðunni lotto.is, í Skalla, Hraunbæ í Reykjavík og þrír miðar voru í áskrift.

Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá þeir 100 þúsund krónur hver í vinning. Miðarnir voru keyptir í Kvikk á Vesturlandsvegi í Reykjavík, N1 í Borgartúni í Reykjavík, á heimasíðunni lotto.is, í lottó appinu og tveir miðar voru í áskrift.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!