KVENNABLAÐIÐ

Heppinn íslendingur hlýtur rúmlega 17,6 milljónir

Auglýsing

Heppinn Íslendingur, sem keypti sér miða í Happahúsinu í Kringlunni, var með allar sex aðaltölurnar réttar og fær því  2. vinning kvöldsins. Vinningnum deilir hann með Norðmanni, en þeir fá hvor rúmlega 17,6 milljónir í sinn hlut. Hvorki 1. né 3. vinningur gengu út að þessu sinni.

Átta voru með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og fær hver 100.000 kr. í vinning. Tveir miðanna eru í áskrift, tveir voru keyptir hér á heimasiðunni, lotto.is, en hinir miðarnir voru keyptir í Lukkuláka í Mosfellsbæ, Söluturninum Hraunbergi 4 í Reykjavík, Ungó í Reykjanesbæ og Olís í Mosfellsbæ.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!