KVENNABLAÐIÐ

Ostakaka sem tekur 5 mínútur að búa til!

Auglýsing

Hver vill ekki læra að búa til einföldustu ostaköku í heimi? Þessari ostaköku er auðvelt að verða háður en hún er rjómakennd og fersk. Berin og sítrónan gefa henni bjartan og ferskan tón! Er hægt að tala um tóna í mat? Alla vega heyrðum við tóna … þegar við smökkuðum þessa … og komust í frekar gott stuð…

giphy

 

  • 10 gamaldags makkarónu-kexkökur
  • 300 grömm rjómaostur hreinn
  • rifinn börkur og djús úr einni límónu
  • 3 matskeiðar flórsykur
  • 200 grömm þiðin ber ( við keyptum frosin hindber í poka)

1. Settu kexið í lokaðan plastpoka og myldu það milli fingranna. Skiptu á milli fjögurra hárra desertglasa!

2. þeyttu saman rjómaostinn, límónubörkinn og 2 matskeiðar af flórsykrinum þar til osturinn verður silkimjúkur. Skiptu ostablöndunni jafnt í glösin fjögur.

3. Blandið saman  berjunum, einni matskeið af sykri og límónasafanum í skál og hellið yfir ostinn. ATH! Sósuna má líka hita og hafa heita með. Skreytið með rifsi eða bláberjum, brómberjum eða bara þeim berjum sem þú átt til.