KVENNABLAÐIÐ

Skuldum vafin Tori Spelling landar hlutverki í endurgerð 90210

Tori Spelling, sem alltaf er í vandræðum með fjármálin sín og eyðsluna, mun kannski geta farið að greiða einhverjar skuldir þegar sem hún fékk hlutverk í endurgerð af Beverly Hills 90210: „Það er staðfest. Við ætlum að gera nýtt 90210. Þetta er upphaflega fólkið aftur saman. Við ætlum að leika stærri útgáfur af okkur sjálfum og aðdáendum á eftir að verða komið skemmtilega á óvart. Við munum sýna ykkur það.“

Auglýsing

Tori er heppin, þar sem skuldir eru næstum að gefa útaf við hana. Hún og eiginmaðurinn, Dean McDermott sem eiga afar stormasamt hjónaband, var gert skylt að greiða kreditkortareiking við AMEX upp á sem samsvarar 10 milljörðum ISK. Reyndi Tori að fá hjálp frá mömmu sinni, Candy, en hún neitaði.

Auglýsing

„Candy hefur alltaf reynt í gegnum árin að hjálpa Tori fjárhagslega. Síðustu ár hafa skuldir hjónanna bara aukist og hún þurfti bara að segja Tori og Dean að þau væru þarna, án hennar hjálpar,“ sagði vinur hjónanna nafnlaust í viðtali við Radar.

Aðdáendur hafa sakað Tori um að hafa neitað að afhenda vörur úr slímframleiðslu dóttur sinnar þrátt fyrir að hafa hirt peninginn. City National Bank hefur gert kröfu á parið að greiða 22 milljarða ásamt vöxtum en þau hjónin greiða víst aldrei neitt tilbaka.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!