KVENNABLAÐIÐ

Öflugri melting og brennsla eftir sumarfríið!

Meltingarvandamál, hægðatregða og uppþemba eru oft hvimleiðir fylgifiskar sumarsins! Því deili ég með þér í dag 5 góðum ráðum til að efla meltinguna og brennsluna eftir fríið.

Slæm melting og bólgur (innflammations) orsakast oft vegna röskunar á rútínu okkar og mataræði.  Slíkt á til að hægja á brennslunni og starfsemi allra líffæra sem getur valdið sýkingum, þyngdarstöðnun, orkuleysi og ýmsum kvillum.

Auglýsing

Grunnstoð heilsunnar er heilbrigð melting. Meltingin spilar lykilhlutverk í að líffærastarfsemi okkar sé virk og að líkaminn vinni rétt úr fæðunni. Meltingarflóran spilar einnig stórt hlutverk í styrkingu ónæmiskerfisins þar sem það býr að stórum hluta í meltingarfærunum. Tenging er á milli meltingarflórunnar og heilastarfsemi okkar og því slæm melting oft afleiðing andlegrar depurðar eða öfugt.

Með því að efla meltinguna stuðlum við að meiri orku, virkari brennslu og bættri andlegri líðan. Hér eru 5 ráð til að efla meltinguna náttúrulega!

Elskaðu góðu bakteríurnar

Þarmaflóran þarfnast góðra meltingargerla fyrir virka starfsemi. Mitt helsta ráð þegar kemur að meltingagerlum er að gefa líkamanum fjölbreytt úrval gerla fyrir sem bestan árangur. Mér finnst gott að rótera eftir tegundum gerla sem ég nota hverju sinni og oft á ég til 2-3 mismunandi tegundir gerla heima sem ég skipti á milli daga. Góðar bakteríur finnast einnig í ýmsum fæðum eins og sýrðu grænmeti, gerjuðum jógúrtum og kombucha drykkjum. Gott er að neyta þessara fæðutegunda allt að þrisvar í viku eða oftar.

Skiptu út bólgumyndandi fitum og olíum

Auglýsing

Holl fita skiptir gríðarlegu máli fyrir virka meltingarstarfsemi þar sem hún hjálpar til við upptöku og geymslu næringarefna. Holl fita heldur einnig heilastarfsemi og brennslu í lagi og getur dregið úr bólgum í meltingarfærum. Það er liðin tíð að telja að hollar fitur stuðli að þyngdaraukningu enda hefur verið sannað að þær geta þvert á móti stuðlað að þyngdartapi sem og almennri vellíðan. Mikilvægt er þó að velja réttu olíurnar. Olíur frá soja, maís og dýraafurðum geta verið erfiðar fyrir meltinguna. Skiptið þeim út fyrir kaldpressaðar olíur, eða með því að borða fisk, hemp- og hörfræ, kókos-, avókadó- og ólífuolíur. Fæðutegundir sem eru sérstaklega ríkar af hollri fitu eins og hnetur, möndlur, fiskur, kókos og fræ, hjálpa einnig við að efla meltingu og brennslu.

stev2

Minnkaðu sykurinn

Aldrei er góð vísa of oft kveðin! Hvítur sykur getur myndað meltingarkvilla og bólgur í meltingarvegi. Minnkaðu sykur í mataræðinu með því að skipta út sykruðum drykkjum fyrir sódavatn eða vatn. Temdu þér að lesa á innihaldslýsingar svo þú sért ekki að innbyrða sykur að óþörfu og forðastu að kaupa sykraðar mjólkurvörur eða aðrar vörur sem innihalda viðbættan sykur. Veldu frekar náttúrulega sætugjafa eins og döðlur, stevíu, hlynsíróp, hunang eða kókospálmanektar sem fara mun betur í meltinguna.

Svitnaðu streituna burtu

Streita hefur bein tengsl við upptöku næringarefna og meltingu. Því er mikilvægt að halda streitu í skrefjum fyrir heilbrigða meltingu. Hreyfing er tilvalin þar sem hún dreifir huganum og kemur okkur aftur niður á jörðina. Rannsóknir hafa sýnt mikilvægi þess að hafa jafnvægi á æfingunum enda getur of áköf líkamsþjálfun haft skaðleg áhrif, t.d. á nýrnahetturnar, hægt á brennslunni og valdið streitu. Hugaðu því að jóga, göngum eða öðrum rólegri æfingum samhliða ákafari æfingum sem hækka púlsinn.

Hreinsaðu líkamann

Meltingarvegurinn fyllist af eiturefnum eftir óheilbrigt líferni, slæmt mataræði, streitu, áföll eða sýklalyf.  Hreinsun með fæðu getur því verið mjög áhrifarík og góð, en ef hún er ekki gerð rétt eða í hófi geta áhrifin verið skaðleg. Það er mikilvægt að fara rétt að og fylgja góðri hreinsunaráætlun. Sem heilsumarkþjálfi mæli ég alltaf með að hefja stutta hreinsun til að losna við löngun í sykur og óhollustu, koma meltingunni af stað, auka orkuna og undirbúa líkamann þeirra fyrir lífsstílsbreytingu!

Ég mun fara dýpra í hvernig á að hreinsa með fæðu og gefa einfalt próf sem sýnir hvort þú þurfir virkilega á hreinsun að halda í ÓKEYPIS fyrirlestri 22.ágúst.

Skráning er hafin hér á ókeypis fyrirlesturinn! Það eru takmörkuð pláss í boði svo ég mæli með að þú skráir þig strax!

Á fyrirlestrinum lærir þú ómissandi ráð til að hefja breyttan lífsstíl, auka orkuna og losna við sykurlöngun. Allir sem mæta í beinni fá ókeypis uppskriftir og sérstakt hreinsunarpróf!  Ég opna síðan fyrir spurningar á línunni svo þú getur spurt mig að því sem þú hefur verið að velta fyrir þér varðandi heilsuna!

Kv.

Júlía Heilsumarkþjálfi

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!