KVENNABLAÐIÐ

Spurt og svarað: Kynlíf, kynþroskaskeið og stærð limsins

Kynlíf og sjálfsfróun: Sæl, ég er 16 ára strákur sem er búin með kynþroskaskeiðið. Kynlíf og sjálfsfróun hefur aldrei verið vandamál hjá mér fyrr en núna, seinustu 2 mánuði hef ég ekki getað fengið fullnægingu, er samt alltaf graður og typpið mitt er búið að stækka um 4cm á þessum 2 mánuðum. Ég veit ekki alveg hvað er að eða hvað ég get gert, væri þakklátur ef þú vitir hvað ég get gert. Takk fyrir.

Auglýsing

Sæll og takk fyrir fyrirspurnina.

Af lýsingum þínum að dæma er þetta allt eðlilegt hjá þér. Þú ert sennilega enn á lokaskrefum kynþroskans ef typpið þitt er enn að stækka. Þú skalt ekki hafa áhyggjur af að þú fáir ekki fullnægingu í einhvern tíma það er eðlilegt og veldur bara streitu að hugsa of mikið um það sem aftur getur leitt til þess að fullnæging stendur á sér. Hormónar eru enn í miklum sveiflum sem veldur því að miklar sveiflur eru á tilfinningalífi og kynhvöt.

Gangi þér vel

Doktor.is – spurt og svarað – allt um heilsu og lyf!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!