KVENNABLAÐIÐ

Vandinn við að hafa of stór brjóst

Brjóstin breytast alla ævi:

Brjóst kvenna eru misjafnlega sköpuð. Þau breyta um lögun og stærð alla ævi.

Vera kann að þú finnir fyrir spennu og þrota í brjóstunum þegar líður að tíðablæðingum. Þessi tilfinnig líður hjá um leið og blæðingar hefjast.

Þegar þú verður barnshafandi og eftir fæðingu muntu einnig finna greinilega spennu í brjóstunum, og þau stækka þegar mjólkurkirtlarnir þroskast og mjólkurframleiðslan þróast.

Síðar á ævinni minnkar kirtlastarfsemin, og fita eykst. Af því leiðir að brjóst sumra kvenna stækka, en hjá öðrum vilja þau stundum minnka.

Auglýsing

Konur og brjóst þeirra

Margar konur eru ósáttar við útlit og brjóstastærð. Það byggist að sjálfsögðu á því að menning okkar leggur þunga áherslu á hlutverk brjóstanna í kynþokka kvenna. Fjölmiðlar mata okkur stöðugt á fyrirmyndum sem teljast hafa óskaútlitið á hverjum tíma. Meðvitað eða ómeðvitað dreymir sumar konur eflaust um að brjóst þeirra falli að forskrift þessarra tilbúnu fyrirmynda.

Óþægindi af stórum brjóstum

Of stór og lafandi brjóst geta verið til ama. Jafnvel ungum konum, sem hvorki hafa orðið barnshafandi né fætt barn, getur fundist stærð brjósta sinna verulegt lýti. brjóstahaldari af réttri stærð getur hjálpað en hann leysir ekki vandann þegar farið er úr fötunum, hvort sem það er á ströndinni á sumrin, í búningsklefanum, í sundi eða bara heima.
Við hin getum haft okkar skoðun, hrist höfuðið eða reynt að hughreysta viðkomandi. Það kemur samt að litlu gagni.
Brjóstin geta líka verið svo óbærilega stór og þung að þau valdi líkamlegum óþægindum. Hlírar brjóstahaldarans grafast niður í axlirnar, líkamsburður verður afbakaður og afleiðingin er verkir og vöðvabólga, bæði í brjóstkassa, öxlum og baki.

Hvert á að leita aðstoðar?

Ef ástæða er til, áttu að ræða þetta við lækninn þinn, og gildir þá einu hvort þú sért ung (þú verður að vera fullþroskuð og komin af gelgjuskeiðinu) eða eldri. Engu skiptir, hvort þú hefur fætt barn eða ekki.

Læknirinn metur þörf þína fyrir aðstoð. Þá er um að ræða skurðaðgerð. Læknirinn mun vísa þér áfram ef hann telur ástæðu til. Árangurinn felst ekki eingöngu í minnkun brjóstanna, útlit þeirra verður að vera þóknanlegt og þá auðvitað sérstaklega þér.

Auglýsing

Hvernig fer aðgerðin fram?

Í aðgerðinni er fitu- og kirtilvefur í brjóstinu fjarlægður ásamt umframhúð. Með því að fjarlægja þessa vefi og strekkja á eftirsitjandi húð er hægt að gera brjóstin léttari, minni og þrýstnari. Algengasta aðferðin er gerð þannig að eftir situr ör í laginu eins og akkeri, þ.e. hringinn í kringum geirvörtuna, beint niður af geirvörtunni og í fellingu undir öllu brjóstinu. Geirvörturnar eru látnar halda tengslum við kirtla og fituvef, en þær eru færðar hærra upp á brjóstvegginn. Eftir aðgerðina er búið um brjóstin með ákveðnum umbúðum, grisjum og plástri í fimm til sex daga þar til skipt er á umbúðunum. Í einstaka tilfellum er komið fyrir kera í innra brjóstsárinu til að líkamsvessar og blóð geti lekið frá sárinu.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!