KVENNABLAÐIÐ

Birna Brjánsdóttir: Líkfundur við Selvogsvita

Frá blaðamannafundi lögreglu sem fram fór í dag var upplýst að þyrla landhelgisgæslunnar fann lík við Selvogsvita. Telur lögreglan að um sé að ræða Birnu Brjánsdóttur. Rannsókn á vettvangi er lokið. Ekki er hægt að segja til um dánarorsök en niðurstöður úr bráðabirgðarannsókn munu liggja fyrir innan nokkurra daga. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir að yfirgnæfandi líkur séu á að henni hafi verið ráðinn bani.

Sigríður Guðjónsdóttir lögreglustjóri las upp fréttatilkynninguna og vottaði fjölskyldu Birnu samúð sína. Lífssýni fundust í bílnum sem og á munum úr skipinu. Taldi Grímur að líklegt væri að henni hefði verið ráðinn bani í bílnum.

Eins og kunnugt er fór stærsta leit björgunarsveitanna fram um helgina þar sem um rúmlega 700 manns af öllu landinu tóku þátt í leitinni. Tveir menn eru í gæsluvarðhaldi lögreglu en þeir voru af togaranum Polar Nanoq. Þeir hafa neitað sök en sönnunargögn hafa leitt í ljós að blóð var í bílaleigubíl sem þeir höfðu til umráða um helgina.

elvogur
Selvogur
Auglýsing
a blaðamann
Frá blaðamannafundi lögreglu í dag

Við sendum ættingjum og vinum Birnu Brjánsdóttur okkar innilegustu kveðjur og megi þau hafa styrk til að komast í gegnum þetta hræðilega mál.

Björgunarsveitarfólk og lögregla fá okkar bestu þakkir fyrir ötult og gott starf þeirra.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!