KVENNABLAÐIÐ

Vandræðalegt: Jennifer Garner hafnaði stefnumóti með Casper Smart

Fyrrverandi kærasti Jennifer Lopez, Casper Smart var yfir sig heillaður af leikkonunni Jennifer Garner þar sem hann hitti á hana í stúdíói Warner Bros. í Burbank, Kaliforníu. „Hann spurði Jennifer hvort hún vildi fá sér kaffi með honum,“ segir áhorfandi. Væntanlega hefur hinni þriggja barna móður fundist þetta vandræðaleg uppákoma þar sem hennar fyrrverandi, Ben Affleck, var eins og kunnugt er, trúlofaður J.Lo.

Auglýsing

Jennifer sem er 44 ára hafnaði honum kurteisislega og sagði að hún væri „afar upptekin við að vinna í hinum ýmsu verkefnum ásamt því að vera móðir í fullu starfi. Svo óskaði hún honum góðs gengis og dreif sig út,“ sagði sjónarvotturinn.

 

 

jen-gar

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!