KVENNABLAÐIÐ

Hvað er til ráða við beinhimnubólgu?

Beinhimnubólga (e. periostitis tibia, medilat tibiasyndrom, shin splints) er algengur álagsaáverki hjá hlaupurum og er tíðnin óháð kyni og aldri. Flestir hafa orðið fyrir meiðslunum einhvertíma á hlaupaferlinum og eru batahorfur góðar ef fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð er beitt tímanlega.

Verkurinn við beinhimnubólgu eru staðsettur innanvert á sköflung u.þ.b. 10 til 20 sm fyrir ofan ökklaliðinn. Í fyrstu koma óþægindin eftir æfingar en verða síðan meira viðvarandi.

Aftari vöðvi sköflungsins (musculus tibialis posterior) endar í sin sem liggur innanvert um ökklaliðinn og undir fótinn þar sem sinin dreifir sér í smærri greinar sem festast undir millifótabeinin. Vöðvinn er mikilvægur til að mótverka innhalla á fæti (pronation). Við innhalla eykst álagið á vöðvanum og hætta á bólgu við beinhimnuna.

Meiðslin eru algengust á vorin þegar æfingaálag er aukið. Hlaup á hörðu undirlagi, hallandi braut og skór með lélega dempun/-stuðning er algengur orsakaþáttur, en of mjúkt undirlag (sandur, gras) getur aukið á innhalla og orsakað meiðslin.

Auglýsing

Til að fyrirbyggja meiðslin er því mikilvægt að huga vel að skóm, hugsanlegu innhallavandamáli, hita vel upp fyrir átök, taka mark á verkjaaðvörunum og draga þá úr æfingamagninu.

Teygjur á aumum og stuttum vöðvanum eru mikilvægar og draga má úr bólgunni með ískælingu (a.m.k. 20 mín. í einu 2 til 3svar á dag) eða með bólgueyðandi lyfjum.

Í flestum tilvikum eru batahorfur góðar ef tekið er á vandanum í upphafi með festu en ef einkenni eru slæm eða hverfa ekki þrátt fyrir meðferð er rétt ad taka röntgenmynd af sköflungnum til að útiloka hugsanlega álagssprungu/brot í beininu.

Doktor.is – allur fróðleikur um heilsu og lyf!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!