KVENNABLAÐIÐ

Hjálpræðisherinn elskar föt með reynslu!

Þarft þú að losa þig við notuð föt? Það getur þú auðveldlega gert núna þar sem nýir fatagámar Hjálpræðishersins eru nú staðsettir við allar Krónuverslanir! Hjálpræðisherinn á og rekur nytjamarkaði Hertex sem eru á eftirtöldum stöðum: Vínlandsleið 6-8 í Grafarholti, Garðastræti 6 í miðbæ Reykjavíkur, á Ásbrú í Reykjanesbæ og Hrísalundi 1b á Akureyri.

Allur ágóði af fatasölunni rennur til hjálparstarfs innanlands og Hjálpræðisherinn hefur um áraraðir rekið súpueldhús í Herkastalanum ásamt því að hjálpa þeim sem minna mega sín.

Svona líta gámarnir út. William Silverthorn er hæstánægður með þá, eins og sjá má!
Svona líta gámarnir út. William Silverthorn er hæstánægður með þá, eins og sjá má!

Flokkunarstöðin er staðsett í Vínlandsleið og taka þau þar við ýmsu öðru sem hægt er að selja – þ.e.a.s flestallt sem þú þarft að losa þig við. Opið er frá 11-18 alla virka daga og 12-17 á laugardögum. Gildi Hertex eru: Framtíðarvon, umhverfi og fjölbreytileiki.

Hertex á Vínlandsleið 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!