KVENNABLAÐIÐ

Sprautar olíu í vöðvana til að verða eins og Hulk: Langar samt að verða enn stærri

Brasilíska kjötfjallið Valdir Segato er 48 ára. Fyrir fimm árum var hann lítill og visinn en brá á það ráð að sprauta hugsanlega lífshættulegri olíu í vöðvana til að verða stærri. Olían kallast synthol og er alls ekki sársaukalaust að sprauta henni í vöðvana. Upphandleggsvöðvar hans eru tæplega 60 cm ummáls, sem hlýtur að teljast ótrúlegt.

Valdir fyrir 30 árum síðan með móður sinni. Fæstir þekkja hann fyrir sama mann.
Valdir fyrir 30 árum síðan með móður sinni. Fæstir þekkja hann fyrir sama mann.

Valdir segist dást að líkamsvexti Arnold Schwarzenegger og teiknimyndahetjunni Hulk og er afar þekktur í Sao Paulo. Kallar fólkið hann „He-Man“ eða skrímslið. Valdir finnst hann ekki vera nægilega stór þó og ætlar sér að verða enn stærri. Vonandi lifir hann það af.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!