KVENNABLAÐIÐ

Sex and the City gæti komið aftur á skjáinn!

Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte gætu verið aftur á leið í sjónvarpið samkvæmt nýjustu fregnum. Sarah Jessica Parker sagði að þær hefðu fengið fundarboð og sagði hún að „engin okkar hefði sagt nei. Ég veit ekki hvort um er að ræða mynd eða þætti en það mun fara fram umræða og mun síðar koma í ljós hvað veðrur. Ég held að það hafi hinsvegar alltaf verið möguleiki á að koma saman á ný.”

Auglýsing

Sex ár eru síðan Sex & the City 2 kvikmyndin var sýnd í kvikmyndahúsnum.

Leikarinn Willie Garson (Stanford) hafði áður tjáð sig við Digital Spy að hann hafi alltaf talið að leikstjórinn Michael Patrick King hafi aldrei útilokað nánara samstarf. Er hann allavega tilbúinn og segir aðspurður að hann myndi búa til hundrað myndir: „Ég myndi mæta með brotna mjöðm í göngugrind! Ég held að fólk elski þessar stelpur því þættirnir eru um sambönd milli fólks, ástina, flott föt, frábæra brandara og óvenjulegar kringumstæður.”

Við allavega getum ekki beðið eftir að fá frekari fréttir, en þið?

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!