KVENNABLAÐIÐ

Kona keyrði fram á ruslapoka á veginum sem hreyfðist: Hvað var í honum?

Kona nokkur var að verða sein í vinnuna þannig hún ákvað að stytta sér leið og keyrði aðra leið en venjulega. Á leið sinni sá hún poka á veginum sem allt í einu hreyfðist. Hún ákvað að stoppa og það sem hún fann var ótrúlegt.

poki2

Konan, Malissa Sergent Lewis, sem býr í Kentuckyríki í Bandaríkjunum sagði: „Ég hugsaði bara: „Er ég orðin rugluð? Sá ég ruslapokann hreyfast?“ Ég varð að stoppa og athuga hvað væri í honum.“

Auglýsing

poki3

Opnaði Melissa pokann og fann undursamlegan lítinn hvolp! Var hann með ól en ekkert merki. Hún tók hundinn með sér og ætlaði að reyna að finna eigendurna en taldi það ólíklegt. Eflaust voru það fyrri eigendur sem skildu hann eftir til að mæta dauða sínum.

Ákvað hún því að hvolpurinn, sem þau nefndu Hefty, myndi búa hjá henni og fjölskyldunni. Hann er nú heilbrigður og hamingjusamur hjá fjölskyldu sem elskar hann!

Ekki gleyma að deila ef þér finnst sagan yndisleg ♥

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!