KVENNABLAÐIÐ

Heyrnarlaus stúlka kennir heyrnarlausum hundi sínum táknmál

Það fallegasta sem þú átt eftir að sjá í dag: Walter er hundur sem fæddist heyrnarlaus. Julia, sem er 10 ára frá Pasadena í Bandaríkjunum, fæddist einnig heyrnarlaus.

Þau skilja hvort annað mjög vel, því Julia kennir Walter táknmál. Ættleiddi Julia og fjölskylda hennar Walter sjö mánaða gamlan úr hundaskýli en hann er blanda af terrier og chihuahua.

„Í fyrsta skipti sem ég hélt á Juliu og ég vissi hún gæti ekki heyrt röddina mína, þefaði hún af hálsinum mínum. Walter gerði nákvæmlega hið sama. Ég bara horfði á hann og vissi að hann ætti heima með okkur,“ segir Chrissy, móðir Juliu.

Sjáðu hvað þetta er dásamlegt:

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!