KVENNABLAÐIÐ

Bessastaðir verða Barnastaðir!

Guðni Th. Jóhannesson er nýr forseti Íslands. Guðni er fimm barna faðir þannig að nú má búast við lífi og fjöri á Bessastöðum.

Guðni er kvæntur Elizu Reid og kynntust þau á námsárum sínum við Oxford-háskóla á Englandi. Eliza er frá Kanada og stundaði nám í nútímasögu í Oxford.  Eliza er með MSt-gráðu frá Oxford-háskóla og BA-gráðu í alþjóðasamskiptum frá Toronto-háskóla. Guðni og Eliza hafa verið búsett hérlendis frá árinu 2003.

Guðni og Eliza búa á Seltjarnarnesi ásamt börnum sínum og ætlar fólk að hylla nýjan forseta klukkan 16:00 í dag við heimili þeirra.

Börnin Heita Duncan Tindur (f. 2007), Donald Gunnar (f. 2009), Sæþór Peter (f. 2011) og Edda Margrét (f. 2013). Guðni á dótturina Rut (f. 1994) með fyrri eiginkonu sinni, Elínu Haraldsdóttur, viðskiptafræðingi og listakonu.

Við hjá Sykri fögnum nýjum forseta og því að svona myndarlegur barnahópur geri nú Bessastaði að heimili sínu!

_P8A0208