KVENNABLAÐIÐ

Skrýtið: Fann ref í uppþvottavélinni

Loksins fær maður að vita hvaða hljóð refir gefa frá sér (sbr. lagið vinsæla What does the Fox Say?) en Bretinn Simon Hays í London var að setja í uppþvottavélina og fór úr eldhúsinu án þess að loka henni. Bakhurð íbúðarinnar var opin. Þegar hann kom til baka var lítill yrðlingur búinn að koma sér fyrir á neðri hæð vélarinnar. Reyndi Simon að lokka hann út en sá litli var ekki á því. Simon er dýralæknir og ekki hræddur við villt dýr svo hann náði í kúst til að reka greyið út.

Mamma yrðlingsins hafði verið að kalla á hann fyrir utan og er líklegt að matarlyktin af diskunum hafi laðað yrðlinginn inn.

Þá erum við búin að fá svar við þessu!

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!