KVENNABLAÐIÐ

Hann húðflúraði uppskriftina á kálfann á sér!

Allir elska súkkulaðikökur og ískalda mjólk en ekki eru allir svo ástríðufullir súkkulaðikökuelskendur að þeir láti hafa sig í það að varðveita uppskriftina á líkama sínum.

Reddit notandinn Rudecarp hitti gaur með óvanalegt húðflúr — sem kallar sig Mango — í krabbameinshlaupi. Rudecarp tók mynd af húðflúrinu og spurði gaurinn auðvitað út í þetta óvanalega líkamsskraut.

tattoo uppskrift

Mango svaraði því til að þegar hann hefði loksins dottið niður á bestu súkkulaðikökuuppskrift allra tíma þá hefði hann ákveðið að hún ætti heima á fætinum á sér svo hann gæti gripið til hennar hvenær sem er og hvar sem er.

Hvaða uppskrift er nógu góð til þess að þú viljir hafa hana blekaða á líkama þínum um ókomna tíð?

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!