KVENNABLAÐIÐ

Johnny Depp og Amber Heard að skilja

Aðeins þremur dögum eftir að móðir Johnnys lést sótti Amber um skilnað. Leikaraparið hefur verið saman síðan árið 2011 og kynntust þau við upptökur á myndinni The Rum Diary. Parið var gift í rúmt ár, eða frá febrúarmánuði árið 2015. Samkvæmt TMZ gerðu þau engan kaupmála við giftingu en Heard sækir nú um greiðslur frá Depp til framfærslu. Depp hefur ráðið sér einn frægasta skilnaðarlögfræðing Hollywood til að hafna beiðninni en Laura Wasser hefur varið ýmsar frægar stjörnur í hjónaskilnaðarmálum, s.s. Angelinu Jolie, Britney Spears og Kelis. Nýjustu viðskiptavinirnir hafa verið Jennifer Garner og Gwen Stefani.

Amber sagði við umsókn skilnaðarins að þau hefðu gengið í gegnum mál sem enga aðra lausn væri að finna aðra en skilnað.

Óneitanlega glæsilegt par
Óneitanlega glæsilegt par

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!