KVENNABLAÐIÐ

Anna María Jónsdóttir: Hönnunarverslunin Kraum flutt á nýjan stað!

Verslunin sem selur eingöngu íslenska hönnun: „Við erum afar stolt af nýju búðinni okkar sem er troðfull af nýjum vörum,” segir Anna María Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kraums.

Kraum hafði árum sama verið í Aðalstræti 10, elsta húsi Reykjavíkur. Nú er hún staðsett í Bankastræti 7, neðri hæð verslunarinnar Cintamani. Í þessu húsnæði var um árabil fataverslun Sævars Karls á árum áður.

Leggur Kraum áherslu á að halda sínu orðspori sem ein glæsilegasta hönnunarverslun landsins og hafa þau og hafa enn eingöngu íslenska hönnunarvöru til sölu.

„Við byrjuðum með því að selja vörur frá 60 íslenskum hönnuðum en í dag eru þeir orðnir fleiri en 200!” segir Anna María. „Þannig höldum við okkar sérstöðu ólíkt mörgum öðrum svipuðum verslunum sem allar hafa snúið sér að innflutningi.”

Augljóslega má sjá að uppsetning búðarinnar er eigendunum kær, enda eru standar og hengi sérhönnuð og búin til fyrir búðina. Öll uppsetning er dásamlega falleg eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og er engin furða að Kraum var valin „Tourist shop of the year“ árið 2008 og í fimm skipti hefur verslunin verið valin besti staðurinn til að kaupa íslenska hönnun af Reykjavík Grapevine tímaritinu.

Við hvetjum alla til að kíkja á nýju búðina sem bæði gleður augað og hægt er að kaupa alíslenska hönnun á frábæru verði!

Kraum.is

Kraum á Facebook

 

aa1

(Þú getur smellt á myndirnar til að sjá þær stærri)

aa2

aaa22

aa16

 

aa17

 

aa18

 

aa21

 

 

 

aa25

Þórey Heiðarsdóttir

aa26

 

aa33

Vildís Guðmundsdóttir

aa34

 

aa35

 

aaa3

 

aaa5

 

aaa6

 

aaa7

 

 

 

aaa10

 

aaa11
Allar myndir Hlín/Sykur

 

aaa12

 

aaa13

 

aaa14

 

aaa15

 

aaa19

 

aaa20

 

 

 

aaa23

 

aaa33

Anna María Jónsdóttir

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!