KVENNABLAÐIÐ

Hrukkubaninn sem þú býrð til í eldhúsinu heima!

Kremin sem við kaupum í snyrtivörubúðum eru engan veginn trygg þegar kemur að því að fjarlægja hrukkur eða minnka sýnileika þeirra. Ef þú vilt fallega, mjúka og hrukkulausa húð er hér krem sem þú getur búið til heima!

 

Þetta dásamlega krem þéttir og mýkir húðina og þú veist nákvæmlega hvað þú ert að setja framan í þig (sem við vitum svo sannarlega ekki alltaf með keyptu kremin.)

 

Prófaðu að útbúa kremið og nota það í sjö daga….og sjáðu muninn. Þú átt eftir að elska það!

 

Allt sem þú þarft er:

 

1 matskeið ólífuolía

1 eggjarauða

1 teskeið hunang

2 teskeiðar vaselín

Aðferð:

Bræddu vaselínið í potti í nokkrar mínútur. Taktu af hitanum og blandaðu hinum innihaldsefnunum í. Blandaðu VEL saman (hrærðu í nokkrar mínútur þar til blandan verður mjúk og áferðarfalleg.)

Helltu blöndunni í þartilgert ílát, annaðhvort hreina krukku eða tóma kremkrukku sem er hrein (50 ml.)

 

Notkun:

Hreinsaðu húðina vel áður en þú berð kremið á. Taktu smá krem og berðu það á andlitið í hringlaga hreyfingum – nuddaðu kremið inn í húðina. Eftir hálftíma tekurðu það sem eftir er af kreminu af með bómull eða vatni.

 

Best er að láta kremið liggja á húðinni í meira en klukkustund!

Geymdu kremið svo í ísskápnum og passaðu að nota það jafnóðum þar sem innihaldsefnin eru öll náttúruleg og geta runnið út eftir einhverjar vikur.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!