KVENNABLAÐIÐ

Fullorðinskabarett í kvöld á Húrra!

Rauðvínshúlla, fólk fer í föt og kannski úr þeim, spilað verður á sög, brjóstahöld birtast á ólíklegum stöðum og svanirnir munu hefja sig til flugs. Áhættuatriði, töfrabrögð, brjóstadúskar og bassagrín.

kabar1
Gleði- og glensdúettin Hits & Tits (Margrét Erla Maack og Ragnheiður Maísól Sturludóttir) stendur fyrir kabarett á Húrra. Sérstakur gestur er Luminous Pariah, boylesque-stjarna frá Seattle sem er í Evrópureisu. Þar að auki koma fram hinir ýmsu vinir Hits & Tits, auk gesta frá Sirkus Íslands. Þetta verður einstakt skemmtikvöld. Húsið opnar kl. 20:30 og sýningin byrjar kl. 21. Miðasala er hafin HÉR

kaba
Lumi mun einnig standa fyrir stuttu burlesque- og boylesquenámskeiði í Kramhúsinu föstudaginn 11. mars. Nánar um það HÉR

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!