KVENNABLAÐIÐ

Hvað þýða þessir tíu algengu draumar?

Hvað þýðir að detta í draumi? Missa tönn eða tennur eða vera nakinn á almannafæri? Oft eigum við til að hunsa draumana okkar og hvað þeir endurspegla í sálarlífi okkar.  Lauri Loewenberg, Ian Wallace, Russell Grant og Lauren Lawrence eru sérfræðingar í draumráðningum. Lestu meira hér…

dr fljuga

Að detta

Það þýðir í raun að þú kvíðir því að sleppa ákveðnum hlutum eða missa stjórn á einhverju. Loewenberg kallar þennan draum „rautt flagg frá undirmeðvitundinni“ og trúir því að þetta gerist oftast þegar fólk á í erfiðleikum, annaðhvort í vinnu eða sambandi.

dr missa tönn

Að missa tönn eða tennur

Þetta hefur löngum verið deilt um hvað þýði. Samkvæmt Wallace er þetta tákn um missi sjálfsöryggis á meðan Grant segir það þýða að samband við einhvern nákominn sé við það að falla í sundur. Aðrir segja að þetta sé „freudískur“ draumur – að það tákni fyrir konur að þær vilji ganga með barn á meðan það myndi þýða fyrir karla að þrá kynferðislega spennu.

dr nakinn

Að vera nakin/n meðal fólks

Þessi draumur er býsna algengur og telur Wallace að hann tákni eitthvað sem er viðkvæmt hjá manneskju sem dreymir hann. Hafir þú samþykkt stöðuhækkun, byrjað í nýrri vinnu eða ert á einhverjum tímamótum er það einfaldlega að þú ert að gera eitthvað nýtt sem þú kvíðir að fólk taki illa.

dr test

Að taka próf

Fólk sem haldið er ákveðinni fullkomnunaráráttu á til að dreyma að taka próf því það hvílir í undirmeðvitundinni að það þurfi nú að standa sig! Eitthvað er um að vera annaðhvort í vinnu eða skóla og veldur það dreymanda áhyggjum.

dr deyja

Dauði/að deyja

Dauði í draumi þýðir í raun hið gagnstæða. Sérfræðingar eru sammála um að dauði þýði frekar nýtt upphaf eða ný byrjun á einhverju. Það getur líka þýtt að þú viljir enda eitthvað í lífi þínu, hvort sem það er samband eða vinna.

dr eltur

Að vera elt/ur

Þá sem hefur dreymt að einhver sé að elta þá í draumi vita hversu óþægilegt það er. Wallace telur þetta þó jákvætt því hann segir að verið sé að hvetja dreymandann til að horfast í augu við vandamál sem hefur verið dálítið grafið og forðast jafnvel. Konur dreymir þetta oftar en menn.

dr framhjahald

Framhjáhald maka

Það þýðir sem betur fer ekki að það sé raunin. Draumurinn á sér oft stað þegar þú hefur ekki fengið nægilegan tíma eða athygli frá elskunni þinni. Það getur samt líka þýtt að traust vanti í sambandið.

late

Að vera sein/n

Þessi týpíski draumur þýðir að þú hefur allt of mikið að gera eða berð of mikla ábyrgð. Þetta er viðvörunarmerki um að þú sért ekki að höndla alla þessa ábyrgð.

dr fluyga

Flug í svefni

Flug er merki þess að þú eigir að sleppa takinu  og leyfa hlutunum að hafa sinn gang, samkvæmt Wallace. Það gæti líka þýtt að í lífi þínu sé einhver stjórnlaus spírall sem er að draga þig niður og þú vilt vera frjáls frá.

dr preggo

Að verða ólétt

Það þýðir að ný hugmynd er að skjóta rótum í huga þínum. Þetta er mjög jákvætt merki um að þú sért að þorskast og víkka sjóndeildarhringinn á einhvern hátt. Lawrence segir hinsvegar að þessu megi taka bókstaflega: Að þú viljir í raun ganga með barn.

Heimild: Dose.com

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!