KVENNABLAÐIÐ

Kim Basinger leikur fyrrum ástkonu Christian Grey í Fifty Shades Darker

Kim Basinger fer með veigamikið hlutverk í annarri myndinni um flagarann Christian Grey. Þessu greindi Universal frá í gær, en önnur myndin í trílógíunni sem bera mun heitið Fifty Shades Darker, verður filmuð nú í vor.

Basinger, sem gerði garðinn frægan með lostafullum leik sínum í erótísku myndinni 9 and a ½ Weeks sem setti heimsbyggðina á annan endann fyrir fjölmörgum árum síðan, fer með hlutverk Elenu Lincoln, sem er viðskiptafélagi og fyrrum ástkona Grey, en þau Dakota Johnson og Jamie Dornan snúa bæði aftur í hlutverkum Anastasiu Steele og Christian Grey.

Þá verða breytingar á leikstjóravali, en James Foley mun leikstýra annarri og þriðju myndinni, sem verða teknar upp í beinu framhaldi af hverri annarri og því mikilvægt að tryggja að úrvalslið leikara haldist óbreytt þar til yfir stendur.

Enginn vafi leikur á því að Basinger muni kunna vel við sig í hlutverki tálkvendis, en hér má sjá leikkonuna daðra við ástmann sinn í stórmyndinni 9 and a ½ Weeks – aðdáendur herra Grey eiga því von á góðu þegar framhaldið birtist á hvíta tjaldinu ef taka á mið af færni leikkonunnar til að fóta sig í erótískum hlutverkum:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!