KVENNABLAÐIÐ

Heitt súkkulaði með þeyttum hnetusmjörsrjóma og salthnetum

Heitt súkkulaði með hnetusmjörsrjóma er syndsamlega gott og alveg sérlega notarlegt í skammdeginu! Þetta er fyrir 3-4.

Hnetusmjörsrjómi:

1 bolli rjómi
2 matskeiðar mjúkt hnetusmjör
smá vanilludropar

Heitt súkkulaði:

1 bolli léttmjólk
1 bolli rjómi
2 bollar mjólk
3/4 bollar mjólkursúkkulaðispænir
1/4 bollar dökkur súkkulaðispænir yfir 50%
Smávegis af sjávarsalti
1/4 bolli salthnetur

Þeytið saman rjómann, hnetusmjörið og vanilludropana, kælið.

Setjið mjólkina í skaftpott með þykkum botni og látið súkkulaðispæninn bráðna saman við mjólkina sem þið hitið á VÆGUM hita, saltið.

Setjið súkkulaðið í 3-4 bolla og hnetusmjörsrjómann yfir og skreytið með salthnetum. Það má drussa smá bráðnu súkkulaði yfir ef maður er í stuði. Þetta kemur sko alveg í staðinn fyrir eftirrétt! Gleðilegt skammdegi!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!