KVENNABLAÐIÐ

F O R L E I K U R: 8 mistök sem þú ættir að forðast í 69 stellingunni

#1 – Ekki stinga nefbroddinum upp í rassaboruna á henni eins og þú sért að grafa eftir gulli og gersemum. Í alvöru:

Það er ekkert endilega slæmt í sjálfu sér og er alls ekki það versta sem getur gerst meðan leikurinn stendur sem hæst, en þessu eru bara ekkert allir hrifnir af. Spyrðu frekar konuna áður en þú lætur vaða, bara til að ganga úr skugga um hvar mörkin liggja.

#2 – Ekki verða svo heltekinn af því hvað hún er frábær í að gefa munnmök að þú gleymir henni gjörsamlega. Hún er líka þarna. Alveg eins og þú:

Þetta er jafn fyrirsjáanlegt og að segja að dagur rísi að nýju eftir nótt. En ef þú getur haldið athyglinni vakandi og veitt henni jafn mikla athygli og hún veitir þér, þá fer allt á besta veg. Það er loforð. Alveg eins og með daginn sem rís að lokinni nóttu.

#3 – Ef hún er í rólegum takti og fer sér að engu óðslega, ekki rísa þá upp og hegða þér eins og þungarokkari í rúminu.

Ef annað hvort ykkar fer í fimmta gírinn og hitt dólar sér á rólegum nótum, þá fer allt í vitleysu. Magar nuddast saman, höfuðin slengjast til og fallega píkan hennar fær ofgnótt athygli meðan hún reynir að gæla blíðlega við reðurinn á þér. Reynið að halda jöfnum takti, ykkar beggja vegna!

#4 – Hættu að velta því fyrir þér hvort þú ert að kremja á honum andlitið með (ímynduðum) þunga skapabarma þinna:

Það er ekki hægt að njóta kynmaka ef þú eða rekkjunautur er heltekin/n af því allan tímann hvort of mikill þungi geti stafað af rassinum eða hvort þú sért að kæfa rekkjunautinn með líkamanum og hvort bæði komist lifandi af úr átökunum. Njóttu!

#5 – Ekki sætta þig við óþægilega snertingu sem hann tekur allt í einu upp á sjálfur, bara vegna þess að þú ert … upptekin við annað:

Ef hann, t.d. – stingur nefbroddinum upp í rassaboruna á þér (sjá nr. 1) og þú kannt ekki að meta slík atlot, en líður samt eins og þú getir eiginlega ekki sagt honum það, því þú ert upptekin við að veita honum atlot í augnablikinu … stoppaðu þá bara. Strax. Þó leikar standi sem hæst merkir það ekki að þið getið ekki átt samskipti; að það sé harðbannað að tala saman í rúminu. Vertu hreinskilin.

#6 – Sérfræðingar segja það 69 sé betri á hlið:

Að grúfa sig á fjórum fótum yfir rekkjunautinum getur framkallað sinadrátt og alls kyns verki. Prófið að liggja á hliðinni, það getur verið unaðslegt líka og dregur úr hættu á vandræðalegum sinadrætti á ögurstundu.

#7 – Ekki velta því fyrri þér af hverju þú getur ekki náð hámarki í einni af erfiðustu stellingu sem hægt er að iðka kynmök við:

Það er algerlega frábært ef þú getur komið og auðvitað hefur þú einhvern tímann komið í stellingunni (hver veit?) en fullnæging ætti aldrei að vera lokatakmarkið í þessari stellingu. Líttu frekar á 69 stellinguna sem skemmtilegan hluta af æsandi forleik, þar sem meginmarkið beggja er að einblína á unað hins!

#8 – Ekki stinga fingrinum óvart neins staðar. Hvergi. Aldrei:

Ekki koma neinum á óvart yfir höfuð. Aldrei. Ræðið saman og komið ykkur saman um reglur. Fylgið handritinu. Öll frávik frá leyfilegum leikjum eru bönnuð. Kynlíf er yndislegt, skemmtilegt og best þegar báðir aðilar eru sammála.

Þýtt og endursagt / Cosmo

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!