KVENNABLAÐIÐ

K Y N Ó R A R: Hverjar eru 10 algengustu FANTASÍUR karla og kvenna?

Talandi um kynþokka. Öfugt við það sem flestir telja, sækja karlmenn meira í nánd og láta sig oftar dreyma um maka sinn en klámmyndirnar vilja láta í veðri vaka. Það sem meira er, algengustu fantasíur kynjanna eru talsvert keimlíkar og það sem kveikir í konum, kveikir oftast í körlum líka.

Þetta sýndi rannsókn sem framkvæmd var á vegum háskólans í Montreal og birtist í Journal of Sexual Medicine fyrir skömmu, en niðurstöður leiddu þannig í ljós að algengustu kynórar karla eru ekki jafn öfgafullir og einhverjir vilja láta vera.

1.516 þáttakendur af báðum kynjum voru þannig beðnir að gefa 55 ólíkum kynferðislegum fantasíum einkunn, meðan rannsakendur hólfuðu kynórana sjálfa niður í fjóra meginhluta: Afar sjaldgæfa óra (2.3%), sæmilega sjaldgæfa (15.9%), fremur algenga (50%) og afar algenga (84.1%). 

Þetta eru tíu algengustu kynórar kvenna … 

  1. Ég vil finna til ástar og nándar í kynlífinu (92.2%)
  2. Umhverfi og staðsetning skipta máli í kynórum mínum (86.4%)
  3. Ég læt mig dreyma  um ástaratlot á rómantískum stað; t.d. á yfirgefinni sólarströnd (84.9%)
  4. Mig dreymir um kynlíf á óhefðbundnum stöðum (t.a.m. á skrifstofunni, á almenningssalerni) (81.7%)
  5. Ég leyfi mér að dreyma um að þiggja munnmök (78.5%)
  6. Mig dreymir um að gefa munnmök (72.1%)
  7. Mig dreymir um að maki minn sé að fróa mér (71.4%)
  8. Órar mínir snúast um að fróa maka mínum (68.1%)
  9. Stundum hefur mig dreymt um að sofa hjá einhverjum sem er ekki maki minn (66.3%)
  10. Mig dreymir um að láta drottna yfir mér kynferðislega (64.6%)

Þetta eru tíu algengustu kynórar karla …

  1. Ég vil finna til ástar og nándar í kynlífinu (88.3%)
  2. Mig hefur dreymt um að taka þátt í munnmökum (87.6%)
  3. Ég hef fantaserað um að sofa hjá tveimur konum samtímis (84.5%)
  4. Ég hef haft óra um að sofa hjá öðrum en maka mínum ( 83.4 %)
  5. Mig dreymir oft um kynlíf á óhefðbundnum stöðum (t.a.m. á skrifstofunni, á almenningssalerni (82.3%)
  6. Stundum fantasera ég um tvær konur að njóta ásta (82.1%)
  7. Umhverfi og staðsetning skipta máli í kynórum mínum (81.2%)
  8. Mig dreymir um að hafa sáðlát yfir maka minn (bara karlmenn) (80.4 %)
  9. Ég læt mig dreyma  um ástaratlot á rómantískum stað; t.d. á yfirgefinni sólarströnd (78.4%)
  10. Mig dreymir um að veita konu munnmök (78.1%)