KVENNABLAÐIÐ

Hátískuritið VOGUE lofar íslenska OMNOM sælkerasúkkulaðið í hástert

Skemmtilega umfjöllun um rammíslenska OMNOM súkkulaðið er að finna í nýjasta tölublaði breska Vogue, þar sem greinarhöfundur fer fögrum orðum um sælkeramolana og klykkir út með því að ofursmátt og framsækið fyrirtæki í Reykjavík standi að baki ómótstæðilegum freistingum OMNOM, sem augljóslega falla hátískuheiminum vel i geð.

Forsíðuna prýðir engin önnur en Emma Watson en í gjafadálk bresku tískubiblíunnar leggur ritstjórn eindregið til að lúxussúkkulaði frá OMNOM verði fyrir valinu í sælkerapakkann, þar sem íslenska OMNOM sælkerasúkkulaðið sé margverðlaunað og ægilega ljúffengt í ofanálag.

11880611_460028367509708_3991545510847755515_n
Glæsileg umfjöllun Vogue um rammíslenska Omnom sælkerasúkkulaðið

Þess má til gamans geta að rammíslensku OMNOM sælkeramolarnir eru m.a. fáanlegir í verslunum Selfrigde í London, en framleiðslan er margverðlaunuð. Þannig hlaut OMNOM skandinavíska gullið við afhendingu Alþjóðlegu Súkkulaðiverðlauna árið 2015, en OMNOM hlaut bronsverðlaun í Evrópuflokki við sama tækifæri í fyrra.

screenshot-www.omnomchocolate.com 2015-08-15 16-39-20
Víða berst hróður OMNOM og hátískuheimurinn er sólginn í íslensku sælkeramolana

Þá hlaut sælkeralínan fjölmargar viðurkenningar frá Bresku Súkkulaðiakademínunni fyrr á þessu ári í formi brons- og silfurverðlauna fyrir súkkulaðilinuna sem OMNOM framleiðir. Því varla nema von að Vogue skuli fylgja í humátt á eftir úrskurði þeirra allra bestu og heiðra íslenska sælkeraframleiðslu með þessari skemmtilegu gjafatillögu á síðum tískubiblíunnar.

Til hamingju, OMNOM! 

10906188_362974227215123_3743460120150354624_n

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!