KVENNABLAÐIÐ

Almáttugur! – Spilaði óvænt grófa klámmynd fyrir fullum fyrirlestrarsal og flúði af hólmi

Það sem fer fram hér í myndbandinu að neðan rennur sennilega fólki seint úr minni, en nemandi nokkur í háskóla í Bandaríkjunum er orðinn heimsfrægur fyrir klámáhorf.

Ekki nóg með að skólar séu að hefjast, fyrirlestrar dragist á langinn og einhverjum nemendum kunni að leiðast, heldur sökkva sér einhverjir ofan í fartölvurnar og setja á sig heyrnartól. En hvers vegna í ósköpunum ákvað þessi tiltekni nemandi að grípa til þess að horfa á klámmynd í miðjum tíma? Við því finnum við jafnvel aldrei svar, en eitt er víst að umræddur nemandi steingleymdi að tengja heyrnartólin við fartölvuna.

Auðvitað rís upp hryllileg staða ef viðkomandi býr í foreldrahúsum og setur klámmyndina í gang … en að lenda í slíkum aðstæðum inni í troðfullum fyrirlestrarsal á miðjum skóladegi … það hlýtur að vera heimsmet.

Er nema von að drengurinn hafi flúið af hólmi?

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!