KVENNABLAÐIÐ

Nístandi sár frásögn í kjölfar gleðilegrar þungunar: „Litla hjartað í barninu okkar sló“

Unga parið sem sló algerlega í gegn með heimamyndbandi á YouTube, þar sem hinn verðandi faðir tilkynnir eiginkonu sinni að hún sé ólétt eftir að þvagstrimill sýndi jákvætt svar, hefur sent frá sér annað og skelfilega sorglegt myndband.

Í nýja myndbandinu, sem þau Sam og Nia sendu frá sér tveimur dögum eftir gleðifregnirnar, greina þau frá því að Nia hafi misst fóstrið. Sorgin sem umvefur unga parið er ósegjanlega erfið áhorfs en þau hjónin eiga tvö börn fyrir og halda úti raunveruleikaþætti gegnum YouTube rás sína, þar sem fylgjast má með lífi og störfum litlu fjölskyldunnar.

Við vorum svo hamingjusöm. Og svo bara … BÚMM … laust fósturlátinu niður eins og sprengju.

Sam, sem er eiginmaður Niu, grætur með eiginkonu sinni gegnum alla upptökuna og er skelfilega sorglegt að fylgjast með parinu unga greina frá missinum, þar sem þau höfðu nýverið sett myndband á YouTube sem fór stórum á netinu, þar sem Sam greinir Niu frá þunguninni.

Þannig vildi til að Nia gleymdi að sturta niður eftir klósettferð um miðja nótt og smeygði eiginmaðurinn ungi þvagstrimli ofan í klósettið, prófaði hormónamagnið og fékk jákvætt svar; eiginkona hans væri barnshafandi. Þá tók Sam upp myndbandsvélina og fangaði viðbrögð eiginkonu sinnar á filmu, en myndbandið fékk u.þ.b. 11 milljóna flettingar á YouTube og fréttamiðlar fjölluðu um hamingjuríkar fréttir litlu fjölskyldunnar.

Frásögn þeirra Niu og Sam má sjá hér að neðan, en upprunalega myndbandið er enn á YouTube rás ungu hjónanna og má sjá HÉR

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!