KVENNABLAÐIÐ

Hið nýja Sigló Hótel er glæsilegt í alla staði

Ef þú átt leið um Siglufjörð um Verslunarmannahelgina er um að gera að koma við og skoða Sigló Hótel  en þetta nýopnaða hótelið er gullfallegt og aðkoman glæsileg. Sigló Hótel er skemmtilega staðsett í hjarta bæjarins en það er byggt út í smábátahöfnina.  Hótelið býður upp á lúxus herbergi, Classic herbergi, Junior Svítur og Svítur.  Herbergin eru hvert öðru glæsilegra, óvenju rúmgóð, búin öllum þægindum og er gott útsýni úr öllum herbergjum.

Svítan
Svítan er búin glæsilegum húsgögnum í mildum litum.
Baðherbergi
Baðherbergi
Óvenju rúmgóð herbergi
Óvenju rúmgóð herbergi
xSiglo Hotel_1928 2
Gamli stíllinn er í fyrirrúmi en þó er allt hótelið hið nýtískulegasta
Gott að slappa af og horfa yfir höfnina
Gott að slappa af og horfa yfir höfnina

Veitingastaðurinn Sunna er inná hótelinu ásamt Lobbýbarnum sem opin eru allt árið um kring. Marga fleiri veitingastaði er að finna á Siglufirði en upplýsingar um nokkra þeirra er hægt að finna hér.

sunna_forsidumynd

xSiglo Hotel_1684
Veitingastaðurinn Sunna

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!