KVENNABLAÐIÐ

Ótrúlega lagvís páfagaukur tekur „Everything is Awesome“ eins og poppstjarna

Þó undirrituð hafi ekki enn borið nýju LEGO myndina augum, er nokkuð víst að þessi dásamlegi páfagaukur hefur ekki bara hlýtt á allan lagalistann, heldur einnig fengið tónverkið Everything is Awesome á heilann. Svo heillaður er þessi hrífandi Amazon páfagaukur, sem er búsettur í Florida, að þarlendir fréttamiðlar hafa fjallað um þrekvirki hans (sem er fólgið í þróttmiklum og hrífandi söng).

Fiðruð stjarna er fædd, gott fólk og það sem meira er, ekki fer nokkur vafi á því að íðilgrænum gauknum þykir lífið dásamlegt. Hér fyrir neðan má heyra gaukinn syngja upphafsorðin í LEGO laginu en fyrir neðan myndbandið sjálft má hlýða á LEGO lagið í heild sinni, en hér syngur gaukurinn hátt og snjallt:

Everything is awesome

Everything is cool when you’re a part of a team

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!