KVENNABLAÐIÐ

Súkkulaði, maríjúana og fullnæging gegn tíðaverkjum

Fyrir okkur flestar eru blæðingar óumflýjanlegar… það er bara þannig og margar okkar upplifa mikil óþægindi og verki samfara þeim. Dagana áður en blæðingar hefjast erum við gjarnan uppstökkar og viðkvæmar, uppfullar af gremju. Það er eðlilegt og eina ráðið er bara að setja sig í stellingar og takast á við þessa fyrirtíðaspennudaga og komast í gegnum þá…lifandi.

Þessa leiðindadaga reynum við að komast hjá rifrildum, forðumst að taka afdrifaríkar ákvarðanir, og sneiðum hjá átökum… á meðan við geggjumst um stund (meint til okkar sem þetta á við, þið hinar sem siglið í gegnum þetta tímabil á bleikum bólstrum….við öfundum ykkur.)

En svo byrja blæðingarnar og fjandans verkirnir. Það er alltaf gott að eiga íbúfen í skápnum, passa að manni verði ekki kalt á fótunum og drekka eitthvað heitt til að róa magann og hita kroppinn. En náttúran býður upp á frábær ráð sem vert er að prófa við tíðaverkjum og krömpum.

1. súkkulaði

chocolate1

Margar konur elska súkkulaði en til að súkkulaðiát hafi tilætluð áhrif þá erum við að tala um alvöru súkkulaði. Ekki Mars eða Snickers heldur hrátt súkkulaði. (e. Raw Chocolate) passið að eiga slíkt til þegar þið byrjið á blæðingum næst.

„Súkkulaði (cacao)  hefurmikið magn af magnesíum sem á að hafa vöðvaslakandi áhrif og koma í veg fyrir krampa– prófið að borða súkkulaði til að fyrirbyggja mikla verki og krampa“

 

2. Maríjúana

cannabis1

Maríjúana eða gras hefur verkjastillandi áhrif og víða um heim er þetta náttúrulyf löglegt í lækningaskyni og til einkanota. Enn sem komið er það ólöglegt á Íslandi að rækta og neyta marijúana en þar sem margir lesenda okkar búa erlendis þar sem lyfið er löglegt er full ástæða til að minnast á það hér. Maríjúana dregur úr krömpum og það slaknar á leginu.

„Margar vísindalegar rannsóknir hafa sannað verkjastillandi áhrif maríjúana“

3. Fullnæging

orgasm1

Fullnæging meðan þú ert á blæðingum er frábær leið til að draga úr verkjum og krömpum. Við fullnæginguna losna endorfín úr læðingi sem hjálpa þér að takast á við verkina. Við fullnæginguna dregst legið saman og svo slaknar vel á því og þetta ekki bara færir þér vellíðan heldur dregur einnig úr tíðaverkjum. Engan tepruskap. Stundaðu sjálfsfróun meðan á blæðingum stendur til að draga úr verkjum eða elskastu með ástinni þinni.

“ þegar vöðvarnir í leginu herpast saman og endorfínið sem myndast við fullnægingu kemur til bjargar verða kramparnir bærilegri“

Stolið og staðfært af Mytinysecrets.com

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!