KVENNABLAÐIÐ

Forleikurinn

Í öllum samböndum þar sem kynlíf er stundað er forleikurinn mikilvægur undanfari samfara. Skilgreiningin á forleik er hver sú athöfn sem á sér stað áður en samfarir eiga sér stað sem er í þeim tilgangi að örva sjálfa þig og mótaðilann og undirbúa þannig kynmök.

Forleikurinn getur verið margbreytilegur og aldrei eins. Forleikur getur verið orð, snerting, augnaráð, kossar, leikir og fleira þess háttar. Forleikurinn gefur líka þér og mótaðilanum tækifæri á að kanna líkama hvors annars fyrir kynmök. Þú upplifir þig nánari hinum aðilanum og þú færð betri skilning á hversu tilbúinn hann/hún er fyrir kynmök.
Þegar kona verður kynferðislega örvuð þá framleiðir hún eigið “sleipiefni” sem gerir hana tilbúnari til að taka á móti limnum og leggöngin opnast aðeins sem auðvelda innkomu. Það er því nauðsynlegt að stunda forleik.


Margar konur líkja forleiknum við ísjaka þar sem kynlífið er tindurinn sem stendur uppúr en forleikurinn er allt það sem er undirliggjandi og sést ekki.

Það er ekki til nein ákveðin uppskrift af forleik en ég mæli með að gera bara það sem ykkur finnst gott og kemur ykkur til. Þetta klassíska er að liggja saman og kyssast og snerta hvort annað. Dimma ljósin og setja góða tónlist á. Það er gott að vera leiðbeinandi, segja honum og stýra honum við að kenna honum hvað þér finnst gott. Einnig ef hann er harðhentur eða klaufalegur við þetta.
Þegar geirvörtur verða harðar, snípurinn stækkar og öndun verður hraðari þá er kona orðin kynferðislega örvuð.

Það er mjög mismunandi hvað konur blotna mikið og er það hormónatengt. Sumar sem eru á pillunni blotna ekki mikið og þá er um að gera að nota olíu eða sleipiefni eða hreinlega munnvatn. Það er nefninlega aldrei gott að reyna troða limnum inn ef nægileg bleyta er ekki fyrir hendi.

standing-up-image

Hérna koma svo nokkur ráð í forleik:

 

  • Byrjið á höndunum – Haldist mjúklega í hendur. Kyssið fingurna að innanverðu en fingur eru mjög næm svæði og hafa því miður nær gersamlega verið látin afskiptalaus í gegnum tíðina.
  • Mjúkir kossar – Byrjaðu á neðri vörinni. Settu hana á milli vara þinna og kysstu létt. Færðu þig nú að efri vörinni og síðan að hálsinum, eyrnasneplinum og augnlokunum – í þessari röð. Haltu vörum þínum lokuðum, augunum opnum og tungunni í munninum, í það minnsta að svo stöddu.
    Þegar þú kyssir skaltu strjúka bakið með vel snyrtum nöglunum. Þó ekki of hart.
  • Ákveðnari kossar – Algengt umkvörtunarefni: of mikil tunga. Aldrei teygja tunguna lengra en sem nemur einum þriðja inn í munninn. Þess í stað skaltu nota tungubroddinn til að leika við fremri hlutann á tungunni og innanverðar varirnar. Síðan er ekki sexí að láta sleikja á sér tennurnar og láta tunguna leika um tennurnar eins og tannbursta.
  • Kysstu allan líkamann – Flestir byrja ofan frá og vinna sig niður með líkamanum, þ.e. frá munni að brjósti, niður að nafla og neðar… Þetta örvar en prófaðu stundum að breyta til og komdu á óvart.
    Einbeittu þér að eftirfarandi svæðum sem oft verða útundan: innri læri, aftanverð hné og efri hluti brjóstanna (ekki geirvörturnar). Færðu þig frá einu svæði til annars.
    Kysstu stutta, sogföstum kossum. Auktu þrýstinginn með tungubroddinum.
    Eftir að þú hefur kysst eitt svæði skaltu blása létt á það. Þannig fær viðkomandi léttan fiðring um sig sem verkar vel.
  • Strákar – notið hendurnar. Ekki þjösnast á brjóstum hennar. Þess í stað skaltu nudda allt brjóstið með lófanum innanverðum með hringlaga hreyfingum. Byrjaðu með léttum hreyfingum og auktu svo þrýstinginn eftir því sem hún æsist.
    Þegar geirvörturnar eru orðnar stinnar skaltu bleyta fingurna og klemma vörturnar létt með tveimur fingrum og renna þeim fram og til baka. Passaðu þig að kreista þær ekki.
  • Og strákar í stað þess að fara beint í snípinn skaltu eyða svolitlum tíma að strjúka ytri barma hennar með einum eða tveimur fingrum. Það veldur óbeinni örvun í snípnum. Notaðu langar og hægar strokur.
    Færðu barmana varlega í sundur og notaðu þumal- og vísifingur til að stjúka innri hliðarnar. Ekki snerta snípinn strax, þú munt vita hvenær hún er tilbúin.
  • Og til ykkar konur – strjúkið fyrst punginn og látið fingurna leika létt um eistun, alls ekki kreista og verið mjög mjúkhentar. Síðan skaltu setja þumalfingur, vísifingur og löngutöng framarlega á typpið og byrja varlega að draga niður forhúðina, fram og aftur. Síðan að taka um hann allan og rúnka honum fram og til baka í smá stund.

En eins og áður sagði getur forleikurinn líka falist í augnaráði, rómantískri stund, og orðum. Sumir horfa saman á erótískt efni eða lesa erótíska sögu. Þú stjórnar þínum forleik.
Njótið…

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!