KVENNABLAÐIÐ

Átta ára gömul ugla og pínulítill kettlingur bindast tryggðarböndum

Já, það er sem vinátta þekki engin landamæri en þó verður að segjast að vinátta átta ára gamallrar uglu og tveggja mánaða kettlings, sem einhverra hluta vegna, tengdust órjúfanlegum tryggðarböndum á japönsku kaffihúsi (alveg satt) – sé með sérstakara móti. NBC frétastofan komst á snoðir um málið og lesa má meira um dýrin á vefsíðu NBC; en hér fer örstutt myndband … sem sýnir uglu. Og kött.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!