KVENNABLAÐIÐ

EPLI gera útileguna ómótstæðilega

Epli eru frábær  þegar þú ert að grilla eða þarft góðan eftirrétt til að borða í útilegunni. Þú getur notað hvaða epli sem er en rauð og gul epli eru vanalega sætari en þau grænu sem hafa skærari yfirtón og meiri sýru.

apples26-717x396

Kjarnhreinsaðu eplin með kjarnhreinsara en gættu þess að hola þau ekki alveg í gegn. Gerðu rúma holu í eplin og svo kemur til þinna kasta. Hvað langar þig í? Súkkulaði, Nutella eða þurrkaða ávexti?

img_5882

Það er æðislega gott að blanda saman rúsínum, kúrenum og kanil saman við Nutella og fylla eplin að innan.  Eins má setja smátt skorið súkkulaði, hnetur eða möndlur. Eins er nott að blanda saman súkkulaðiflögum, kókosflögum og fræum saman og fylla eplin. Smá smjörklípa gerir gæfumunin…Nú er bara að velja fyllinguna, fylla eplin og baka þau svo inni í álpappír og njóta! Ilmurinn sem berst af grillinu er ómótstæðilegur.

images

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!