KVENNABLAÐIÐ

G Ö T U T Í S K A: Útvíðar gallabuxur koma SJÓÐHEITAR inn í SUMAR

Útvíðar buxur. Sumar. Þú. Og sólgleraugun. Sjöundi áratugurinn er í tísku, skósítt gallaefni og skór með kubbahæl. Sjarmerandi, seiðandi og dálítið sexí. Fótleggirnir verða líka svo langir í útvíðum buxum. Ef þú vilt sýnast hærri, þá skaltu endilega fá þér útvíðar. Og smella þér á hæla.

Instagram fer ekki varhluta af tískutrendinu, en við slógum inn nokkur leitarorð og skönnuðum úrvalið. Þetta er götutískan í dag, eins og hún birtist á netinu. 

#flaredjeans 



 Á Instagram ganga þær ýmist undir nafninu Flared Jeans, Flares eða einfaldlega Flare. En þær eru sjóðheitar, allir vilja eiga par og meira að segja hátískudrottningin Victoria Beckham gengur um í útvíðum buxum þessa dagana. En ekki er sama hvernig útvíðar buxur verða fyrir valinu – gallaefni er sjóðheitt – röndóttar hippabuxur ekki. Og efnið má alveg vera snjáð líka. Allt má í dag. 

#flares 



 Skemmtilegt sem það er nú að skoða Instagram og leita uppi götutískuna eftir því sem kemur manni í hug, þá felur Instagram í sér hafsjó möguleika. Viltu vita hvernig götutískan lítur út? Sláðu einfaldlega inn viðeigandi merki og ýttu á LEITA. Upp kemur iðandi veröldin, gegnum linsu notenda – sem grípur götutrendin sjóðvolg og varpar þeim út í veröldina. Og eitt enn – útvíðar buxur rokka. Átt þú par? 

#flare



Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!