KVENNABLAÐIÐ

K Y N L Í F: 10 leiðir til að gera HANN brjálaðan af LOSTA í rúminu

Svo þig langar að gleðja kærastann í rúminu? Koma á óvart? Sýna rúmsnilli? Hvað heldur þú að kveiki í honum? Veistu, karlmenn eru miklu einfaldari í eðli sínu en glansritin vilja meina. Karlmenn þurfa ást og umhyggju, þeim finnst gaman að kyssa og þú þarft ekki að vera nein fimleikadrottning í svefnherberginu til að vera æðisgengin ástkona. Reyndar er minna oft meira í þessum efnum eins og öðrum – eðlileiki, sjálfsöryggi og afslappað viðhorf til nándar er stundum kynþokkafyllra en allir leikir heims.

Hér fara nokkur atriði sem geta gert karlmenn sturlaða af losta:

men4

– Vertu sjálfsörugg: Ekkert er meira sexí en kona sem veit hvað hún vill – slepptu fram af þér beislinu og kærðu þig kollótta um útlitið. Leyfðu HONUM að ráða ferðinni og leyfðu þér að njóta.

– Konan ofan á: Sestu klofvega ofan á hann og prófaðu að þrýsta mjöðmunum aftur á bak og áfram í hringlaga hreyfingum. Taktu stjórnina alveg í þínar hendur og stríddu honum með því að brosa og auka hraðann og hægja svo á þér og hraða hreyfingunum aftur …

– Segðu hvað þú vilt: Ekki vera hrædd við að segja honum frá fantasíum, löngunum, hvaða stelling þér þykir best … og hvað þú vilt að HANN geri með þér í rúminu!

tumblr_navxhylBv41rizz8go1_500

– Ekki gleyma gælunum: Auðvitað vill HANN líka láta halda utan um sig, upplifa kossa og elskandi gælur. Elskaðu HANN í rúminu!

– Talaðu upphátt: Það er miklu skemmtilegra að sofa hjá konu sem er ófeimin við að klæmast léttilega í rúminu. Nei, hér er ekki átt við upplestur úr 50 Shades, heldur létt spjall um hvað þér finnst gott og hvað virkar ekki. HANN hlustar!

– Ekki feika fullnægingu: Þarf einu sinni að ræða þetta? Ekki bara verður hann ringlaður, heldur ertu að eyðileggja þína eigin möguleika á fullnægingu með manninum í framtíðinni … vertu frekar hreinskilin ef þú nærð ekki hámarkinu.

– Fróaðu þér: Já! Fróaðu þér fyrir framan HANN! Fullnægðu þér, leikið ykkur saman og láttu hann horfa á þig á meðan – pínu svona … Þú Mátt horfa En Þú Mátt EKKI Snerta … það getur gert hvern einasta KARLMANN brjálaðan af losta!

image

– Myndaðu augnsamband meðan þú tottar: Horfðu í augum á honum þegar þú ferð niður á hann og veitir honum munnmök … konur klikka alltof oft á þessu einfalda bragði!

– Vefðu fótleggjunum utan um mjaðmirnar: Já! Vefðu fótleggjunum utan um mjaðmirnar á honum þegar þið eruð í trúboðastellingunni og þrýstu þér þannig nær … snertu HANN með höndunum … og …

– Hvettu hann áfram: Leiðbeindu honum þegar hann er að gefa þér munnmök, segðu honum hvað þér þykir gott; þú þarft ekki að hafa mörg orð um það … stundum er einfaldlega nóg að segja orðin: „ … ekki hætta.”

Góða skemmtun <3

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!