KVENNABLAÐIÐ

Ástin og stjörnumerkin: Svona verður sambandið þitt í sumar

Hvernig verður ástarsambandið í sumar, samkvæmt stjörnuspekinni og stöðu himintunglanna?

010213_1458_WhateverHap1

 

Hrúturinn: 

Þú ert í eðli þínu rómantísk og það hjálpar þér að lifa í núinu. Mundu að það er mikilvægt að sýna hinum aðilanum virðingu. Þegar þið tvö eruð ekki að elskast þá eru þið að rífast. Markmiðið hjá þér ætti að vera að næra sambandið. Rómantíkin ætti að blómstra fram í ágúst og þú ert einstaklega heillandi þessa dagana.

Júlí er mánuðurinn til að styrkja sambandið.

Vinir og fjölskylda munu hvetja þig áfram til að ná markmiðum þínum og láta drauma þína rætast á árinu.

1328920602_channing-tatum-amanda-seyfried-640

Nautið: 

Þú ert voða værukær í ár og helst langar þig að taka þér frí frá vinnu og bara vera þú. En það er ekki í boði og þú þarft fjárhagslegt öryggi. Þú ættir að gera eitthvað verulega rómantískt í maí. Gamall kærasti bankar upp á í ágúst og vill þig aftur og þú verður upp með þér, en manst svo allar ástæðurnar fyrir því að samband ykkar gekk ekki upp áður. Þú þarft að vera fullkomlega heiðarleg við sjálfa þig og tilfinningar þínar því fyrrverandi nær að rugla í þér.

Ástríða í sambandinu mun verða í hámarki í haust og þú svífur um á bleiku skýi.

Best-new-romantic-movies-2014-1124x660-coverthe-fault-of-our-stars

Tvíburinn: 

Satúrnus mun stríða þér í upphafi og enda árs og getur haft mikil áhrif á samband þitt. Annað hvort mun það styrkja gott samband eða setja prófraun á veikt samband. Maki þinn mun vinna mikið á árinu og hefur ekki mikinn tíma fyrir þig og það mun hafa mikil áhrif á samband ykkar. Mundu að tuða ekki endalaust. Þú munt eyða sumrinu í að hugsa mikið um ykkar samband og hvort það eigi sér framtíð eða ekki. Þú ert mikið að velta þér upp úr því að sambandið er ekki eins og það var í upphafi og þetta reynir verulega á ykkur.

Sumarið sker úr um hvort þið verðið áfram saman eða ekki. Í október veistu hvort þú tókst rétta ákvörðun eða ekki.

image

Krabbinn: 

Ó, elsku Krabbi, nú þarftu að vanda þig. Sambandið þitt er í hættu í upphafi sumars og eins mikið og þú vilt að þetta gangi upp þá er ekki víst að þú getir bjargað þessu. Sumarið gefur þér tækifæri til að laga hlutina, játa mistök, fyrirgefa og halda áfram. Þú þarft að vera jákvæð því þú vilt ekki missa af „happy ending“.

Vertu hugmyndarík og taktu skyndiákvarðanir með ferðalög og uppákomur og þannig kemur þú honum á óvart. Þessi nýja og ferska þú munt eiga alla hans athygli.

1024.wheninrome.ls.101812_copy

Ljónið: 

Þú þarft að koma betra jafnvægi á persónulega líf þitt og vinnu. Maki þinn upplifir að hann sé neðarlega á forganglista þínum og að hann sé að fjarlægjast þig. Þú verður að gefa honum athygli þína og hlusta á langanir hans og drauma. Annars er sambandið í hættu og þið vaxið í sundur. Ef þér er alvara með þessu sambandi, þá skaltu leggja þitt af mörkum til að laga þetta og næra sambandið og rómantíkina.

Rómantískt ferðalag í ágúst kyndir undir ástríðunni og þið eigið frábærar stundir framundan í svefnherberginu.

5-Romantic-Movies-Love-Actually

Meyjan: 

Góður tími fyrir Meyjuna og þú vinnur einstaklega vel með þeim sem þú átt í sambandi við. Þetta er rétti tíminn til að vinna sameiginlegt verkefni. Hættu að hlusta á röddina sem hvíslar að þér efasemdum um sambandið því þú ert á réttum stað. Hættu líka að spá í hvað öðrum finnst um ykkur tvö. Rómantíkin mun blómstra með haustinu og ekki vera hissa á að þú fáir bónorð í september.

6781779

Vogin:

Þú átt í sjóðheitu sambandi í sumar og þú getur vafið honum um fingur þér, svo ástfanginn er hann af þér. Þú ert ómótstæðileg um þessar mundir. Allt gengur vel í sambandinu og kynlífið er gott. Leyfðu þér að prófa nýja hluti og ekki hugsa of mikið því það er það eina sem getur komið í veg fyrir að þetta gangi upp hjá ykkur. Þetta endalausa hvað ef… gerir hann brjálaðan og þú verður að hætta að velta upp öllum mögulegum útkomum í öllu sem þið takið ykkur fyrir hendur. Finndu kæruleysið í þér og lífið verður yndislegt.

romantic-movies-distort-reality-L-tTaunz


Sporðdrekinn: 

Sporðdrekinn er rómantískur í sumar. Lautarferðir, sumarbústaður og að liggja saman tvö í tjaldi er einstaklega aðlaðandi. Þú vilt helst horfa í augu ástinnar þinnar og gleyma öllu öðru. Bónorð eða gifting er klárlega í kortunum. Ef þið eruð þegar gift þá farið þið í rómantíska ferð í ágúst. Þú mátt samt ekki alveg kæfa hinn aðilann með þessari rómantík í þér og mundu að þið þurfið bæði að fá að vera þið sjálf og vera ein eða með vinum ykkar stundum.

aashi-1


Bogmaðurinn: 

Tími til að taka lífinu smá alvarlega og jafnvel skuldbinda þig, kæri Bogmaður. Lífið er ekki bara leikur. Ef þú hefur verið að reyna koma þér undan skuldbindingum þá gengur það bara ekki lengur og tími kominn til að ákveða hvað þú vilt með þetta samband sem þú ert í eða taka smá skoðun á hjónabandinu. Ertu á réttum stað, ertu hamingjusöm, viltu vera með honum áfram? Ef já, þá þarftu að leggja meira af mörkum. Ekki láta gamlan séns rugla þig í ríminu, hann vill þig bara núna af því að þú ert með öðrum.

Rómantík og eldheitt kynlíf mun ráða ríkjum í haust.

rht04

Steingeitin: 

Hættu nú að skipuleggja allt í sambandinu, finndu kæruleysið og hvatvísina í þér og komdu maka þínum ærlega á óvart. Skipuleggðu rómantíska ferð innanlands eða utanlands og heillaðu hann upp úr skónum. Hann er nefnilega búinn að gleyma hvernig það er að lifa utan excel skjalsins.
Sýndu að þú kannt að meta litlu hlutina og þá mun rómantíkin lifna við. Þú lærir á þessu ári að kunna meta maka þinn meira og kemst að því að hann mun standa með þér í gegnum súrt og sætt.

Best-new-romantic-movies-2014-the-best-of-me-01

Vatnsberinn: 

Ef þú ert að upplifa að þú og maki þinn eruð að fjarlægast þá ættir þú að staldra við, líta yfir farinn veg og þú munt sjá að ykkur er ætlað að vera saman. Það kemur upp deyfð í öllum samböndum og þú ert klára svoleiðis tímabil. Þá mun taka við rómantík og ástríða ef þú hleypir því að.
Sumarið hefur alla burði til að verða skemmtilegur tími hjá ykkur og þið munið verða nánari en nokkru sinni fyrr með haustinu. Vertu pínu rómantísk og væmin. Það mun falla í góðan farveg.

cdn.indiewire

Fiskurinn:

Mjög mikilvægt er að þú veitir þeim sem þú elskar athygli. Þú þarf ekkert að vera í neinum leik og þetta snýst ekki um hvort ykkar hefur yfirhöndina í sambandinu. Ef þú sýnir honum ást og athygli, þá muntu fá það til baka. Ekki vagga skipinu með því að vera hitta gamlan kærasta og eyða tíma í dagdrauma um hann. Hann var ekki sá rétti og þú veist það vel.

Bjóddu elskunni þinni í rómantíska göngutúra, sundferðir, Bláa lónið, tjaldútilegu, út að hlaupa saman, hjóla og þetta verður eitt skemmilegasta sumar sem þú hefur upplifað.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!