KVENNABLAÐIÐ

VERGARALAND: Sofia Vergara með eigin raunveruleikaþátt á Snapchat

Sofia Vergara er bókstaflega alls staðar. Ekki aðeins komst stjarnan í heimsfréttirnar um daginn þegar fyrrum eiginmaður hennar krafðist þess að fá staðgöngumóður til að ganga með frosin egg Sofiu sem skildi (við vitleysinginn) fyrir ári síðan, (málið er í höndum lögmanna beggja og fer fyrir dóm bráðlega) heldur er Sofia einnig lofuð ítalska gullfolanum Joe Manganiello sem sennilega hugsar þeim fyrrnefnda (eggjaóða eiginmanninum) þegjandi þörfina.

 Sofia er trúlofuð ítalska stóðfolanum Joe Manganiello

Nú hefur Sofia, sem landaði sinni eigin stjörnu á gangstétt Hollywood Walk Of Fame fyrir stuttu, landað veruleikaþætti á Snapchat í samstarfi við Fusion. Þáttaröðin spannar sex þætti og fjallar um líf og örlög Sofiu í Hollywood, séð með augum hins 24 ára gamla Manolo González Vergara, sem er uppkominn sonur stórleikkonunnar.

Fusion-Vergaraland-Snapchat-Sofia-Vergara-Manolo-Gonzalez

Manolo er 24 ára gamall sonur stórleikkonunnar og leikstýrir Snapchat þáttaröðinni

Sofia sagðist í opinberri yfirlýsingu vegna Snapchat þáttana vera himinlifandi yfir þáttunum:

Manolo hefur loks útskrifast úr námi og ég er alveg í skýjunum yfir samstarfi hans við Fusion, sem fæddi af sér svona skapandi raunveruleikaseríu.

Snapchat raunveruleikaþættir Sofiu verða aðgengilegir Snapchat notendum á alþjóðavísu en stærsti markhópur Fusion er ungt fólk um allan heim. Þannig er framleiðslufyrirtækið Fusion þegar hluti af Snapchat Discover sem var sett á laggirnar í janúar á þessu ári og er því hægt að fylgjast með fleiri raunveruleikaseríum gegnum farsímann, svo framarlega sem viðkomandi er með Snapchat í símanum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!