KVENNABLAÐIÐ

Sturtukynlíf: Sjúklega seiðandi eða vandræðalega blautt?

Sturtukynlíf. Orðið eitt hefur áhrif á hitastigið í herberginu. Er ekki alveg svakalega kynæsandi að fara í sturtu? Og stunda kynlíf? Sofa hjá? Renna á sápunni, rekast í sturtuhausinn, skrúbba elskhugann og …

… er sturtukynlíf kannski bara sexí í sjóðheitum Hollywood myndum? Getur verið að allir aðrir séu snillingar í sturtukynlífi? Nema þú? Og undirrituð? Og örfáir aðrir? Undirrituð vill meina að kynlífsiðkun í sturtu sé flókin í framkvæmd. Fyrst er það hitastigið. Svo vatnsrennslið. Að ógleymdri sápunni. Og hvað var þetta með að reka sig í blöndunartækin og stilla á sjóðheitt eða ískalt og allt þar á milli og hvar var svo aftur handklæðið og af hverju vorum við að gera þetta?

Undirrituð fór á stúfana. Kannaði málið. Spurði nokkra fróða spjörunum úr. Ekki í bókstaflegri merkingu þeirra orða. En undirrituð lagðist í grúsk! Kynlíf í sturtu getur verið sjóðheitt, æsandi og ósiðlega skemmtilegt. Allt sem þarf er örlítil tækni.

Sturtan er frábær forleikur

Sturtukynlíf er sleipt, áhættusamt og getur hreint út sagt verið hættulegt. Sérstaklega ef hlaupið er yfir forleikinn. Sturtan ætti að vera sjálfur forleikurinn; rennandi heitt vatnið, löðrandi sápan og strokurnar geta gert margan ágætan manninn hreinlega brjálaðan af losta. Kossar og kelerí undir rjúkandi heitu vatninu ættu að vera upphafið á leiknum en ekki að marka endalokin. Þegar allt er komið á suðupunkt þá ættir þú að teygja þig eftir mjúku handklæði, smeygja þér undan vatninu – læðast að vaskinum, beygja þig yfir innréttinguna og taka á móti elskhuganum … (eða grúfa þig yfir ástkonuna).

output_ve2Ge8

Stólinn inn í sturtuklefann! 

Það er ekkert sexí að kyssa kærastann, teygja sig eftir sjampóinu og fljúga í flýti á rennblautan rassinn með tærnar upp í loft. Sturtuklefar eru yfirleitt smáir að gerð, þröngir og óþægilegir fyrir tvær manneskjur. Svona að öllu jöfnu. Meira að segja ástfangið fólk getur fengið nóg af troðningi.

Settu stoppmottu í sturtubotninn – náið ykkur í lítinn plaststól með mjúkri vatnsheldri setu og stillið upp í sturtubotninum. Munnmök undir rennandi vatni geta verið unaðsleg og fátt er betra en að leika með tungunni eftir líkama hvers annars þegar vatnið hefur skolað löðrandi sápuna af líkamanum og látið kossana leiða ykkur áfram, lengra inn í unaðinn og út úr sturtuklefanum og inn í svefnherbergi.

output_TY2mvP

Ekki renna á rassinn …

Það er gaman að gera tilraunir undir sturtunni og hreinn, ilmandi elskhugi sem rennir höndunum eftir sleipum líkama ástkonu sinnar gæti sennilega verið handrit að erótískri metsölumynd. Þrengslin í klefanum geta verið æsandi, líkamlega nándin getur keyrt fram úr hófi og gert bæði alveg stjörf af eftirvæntingu og losta. Sturtan getur verið stórskemmtileg ef varlega er farið og ekki of geist. Bein kynmök í sturtu geta oft valdið báðum vonbrigðum og því er best að líta á sturtuna sem leikfang, forleik og upphitun fyrir sjóðheitt kynlíf í svefnherberginu.  En hrátt kynlíf í sturtu getur líka verið gott.

Hvaða stellingar eru bestar í sturtuklefanum?

Njóttu nándarinnar í sturtunni, styddu þig við veggina og gríptu þann stuðning sem hendi er næst – en varaðu þig á blöndunartækjunum því ekkert er óþægilegra en snögg umskipti á hitastigi i miðjum klíðum. Ef aftur á móti hitnar svo í kolunum að engin leið er að komast lengra, leggur Sykurmolinn standandi „Doggy” stellingu til, meðan konan hallar sér upp að sturtuveggnum. Standandi trúboðastelling getur líka verið skemmtileg ef konan mögulega getur tyllt öðrum fætinum upp til að auðvelda manninum aðgengið. Svo er það sjálfur sturtuhausinn sem nota má til að leika við vatnsrennslið meðan á öllu stendur. Allt má ef hitastigið er rétt!

output_CyUyH2

Ekki láta staðar numið við sturtuklefann

Dasaðir og dúnmjúkir elskendur sem stíga út úr rjúkandi heitri sturtu, teygja sig í sitt hvort handklæðið og flissa með blautar tásur á baðgólfinu. Djúsí tónlist í fjarska og kertaljós á baðvaskinum. Hvað er betra en að leiðast hönd í hönd inn í svefnherbergi (eða beint inn í stofu) og halda áfram í svölu andrúmsloftinu; rökkrið hvolfist yfir allt og veðrið lemur gluggana meðan naktir líkamarnir róa saman í takt eftir ylvolga sturtuna … er nokkuð betra en kynlíf í sturtu, ef varlega er farið?

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!