KVENNABLAÐIÐ

Augun í aðalhlutverki

Augnhár tískubloggarans Tanya Burr hafa sigrað hjörtu íslenskra kvenna á öllum aldri og sást það vel á hrifningu gesta á Konukvöldi K100 og Smáralindar sem fór fram nú á dögunum.

7

 

Augnhárin hafa verið sérstaklega vinsæl fyrir árshátíðarfarðanir og sýndu förðunarfræðingar Maybelline gestum hvernig þær gætu nýtt sér nýjungar hjá merkinu með augnhárunum til að gera fallegar farðanir.

8

 

Kremaugnskuggarnir Color Tattoo frá Maybelline voru þar í lykilhlutverki en augnskuggarnir ásamt augnhárunum hennar Tanya Burr fullkomna umgjörð augnanna svo þau fari ekki framhjá neinum.

10

 

 

Förðunarfræðingurinn og bloggarinn Erna Hrund á Reykjavík Fashion Journal kenndi konum hvernig þær ættu að bera sig á þegar kæmi að ásetningu augnháranna og gaf gestum góð ráð.

Förðunarfræðingurinn og bloggarinn Erna Hrund ásamt förðunarfræðingnum Ásdísi Gunnars og bloggaranum Gyðu Dröfn á gydadrofn.com voru fulltrúar Maybelline og Tanya Burr á konukvöldinu.
Förðunarfræðingurinn og bloggarinn Erna Hrund ásamt förðunarfræðingnum Ásdísi Gunnars og bloggaranum Gyðu Dröfn á gydadrofn.com voru fulltrúar Maybelline og Tanya Burr á konukvöldinu.

 

Hún mælir auk þess með kolsvörtum maskara eins og Colossal Go Extreme Leather Black fyrir kvöldfarðanir því hann er exta svartur svo augnhárin fá að njóta sín þó svo augnförðunin sjálf sé mjög dökk.

11

 

Varalitablýantarnir frá Maybelline, Color Drama hafa verið mjög vinsælir meðal ungra kvenna á Íslandi og segir Erna Hrund að það sé helst ljósbrúni liturinn sem stelpur heillast af þar sem hann minni á einkennislit Kylie Jenner sem er yngst hinna þekktu Kardashian systra og mikil tískufyrirmynd ungrakvenna í dag.

4

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!