KVENNABLAÐIÐ

Himnesk karaokesyrpa One Direction og James Corden er fyndnara en allt annað!

One Direction, drengjabandið sívinsæla steig risavaxið skref nú í vikunni með engum öðrum en spjallþáttarstjórnandanum James Corden, er drengirnir tróðu sér allir inn í bifreið þess síðarnefnda.

Tilefnið var þrettán mínútna löng karaokesyrpa, þar sem Harry Styles fór á kostum í baksætinu meðan þeir félagar óku um götur Los Angeles og söngluðu meðal annars Best Song Ever og Story of My Life svo eitthvað sé nefnt.

Drengirnir fóru líka inn á einlægari og persónulegri málefni, eins og einelti það sem þeir hafa mátt þola; þannig sagði Louis af tæplega fimmtugri konu sem færði honum mjólkurpott að morgni dags þar sem hann hafði tíst um skortinn skömmu áður, en Niall sagðist staðráðinn í að giftast Selenu Gomez.

Sjálfur geislaði Corden af lífshamingju undir stýri meðan hann söng hástöfum með Harry, sem tróð sér milli félaga sinna í baksætið en nóg er af orðaflaum; hér má sjá drengina í One Direction ásamt James Corden í stjórnlausri karaokesypru – brjálæðislega fyndið!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!