KVENNABLAÐIÐ

Þriðji í aðventu: Í dag tendra kristnir á Hirðakertinu

Þá er þriðji sunnudagur í aðventu runninn upp, ægifagur og mjallahvítur. Kertin á aðventukransinum eru fjögur talsins og hafa kristnir þegar kveikt á Spádómskertinu, sem er fyrst í röðinni og minnir á spádóma Gamla testamentisins um frelsarann sem koma skal.

Því næst var tendrað á Betlehemskertinu, sem leiðir hugann að bænum þar sem Jésús fæddist í fjárhúsi og var lagður í jötu.

Í dag, þann þriðja í aðventu, tendra þeir sem kristnir eru, sem áður sagði þriðja kertið sem ber heitið Hirðakertið og minnir á hirðana sem voru fyrstu mennirnir sem heyrðu um fæðingu Jésús.

Aðventan er þó ekki einungis tími undirbúnings og ilmandi jóalgöggs í hjörtum þeirra ástvina sem eru fjarri hverri öðrum. Margir bíða í ofvæni eftir að taka mót þeim sem ferðast langa vegu heim um jólin og lenda jafnvel rétt fyrir hátiðir á flugellinum – til þess eins að þjóta í fang elskandi fjölskyldu og ástvina sem þeirra bíða með óþreyju.

Ekki einu sinni ofurnaglinn Chris Brown er ónæmur fyrir fegurð aðventunnar, en kappinn tróð nýverið upp á sviði og flutti þessa hugljúfu jólaballöðu í tilefni af útgáfu breiðskífunnar Royalty, sem ber einmitt nafn barnungrar dóttur hans. Hvetjum við lesendur til að taka sporið með herra Brown og öllum hinum harðnöglunum sem bíða fullir eftirvæntingar eftir langþráðum endurfundum við ástvini sem búsettir eru erlendis og koma heim um jólin.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!