KVENNABLAÐIÐ

Fimm mínútna SÚKKULAÐI–kaka

Stundum bara verður maður að fá smá eftirrétt og þá verður það að vera eitthvað sem tekur stuttan tíma. 5 mínútur – er það nógu stuttur tími fyrir þig? Hérna er uppskriftin og ekki er verra ef þú átt smá ís eða rjóma til að njóta hennar með!!!

Hrærið saman í bolla:

1/4 bolli hveiti
5 mtsk sykur
2 mtsk kakóduft
1 egg
3 mtsk mjólk
3 mtsk jurtaolía
nokkrir vanilludropar
salt bara smá

Setjið bollann inn í örbylgjuna í 2 mínútur og kakan er til!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!