KVENNABLAÐIÐ

HARRY POTTER LITABÆKUR: fyrir börn og fullorðna

Litaæði hefur heltekið landann! Litabækur í öllum stærðum og gerðum má nú finna uppstilltar á stofuborðum en ekki bara í dótakössum barnanna. Ég hef ekki ennþá látið það eftir mér að prófa þessa afþreyingu (sennilega þar sem ég vinn á leikskóla og fæ minn skammt af föndri í vinnunni) en nú gæti það breyst.

Scholastic hefur tilkynnt að þeir muni gefa út litabækur, fyrir börn og fullorðna, með myndum úr Harry Potter heiminum. Sem forfallin Potterhead gæti þessi yfirlýsing mögulega verið það sem lætur mig gefa þessu séns.

enhanced-14901-1446068523-1

Fyrsta litabókin mun innihalda allar helstu persónur ævintýraheimsins, meðal annars:

Dobby, Dumbledore, Hedwig og marga fleiri.

enhanced-21784-1446068319-11

enhanced-23445-1446067975-1

Hún kemur í sölu 10.nóvember næstkomandi.

Næsta bók mun innihalda allar helstu skepnurnar úr Harry Potter heiminum, þar á meðal Fawkes og marfólkið.

81AHTCkp8uL

Þessi kemur í sölu 26.janúar 2016.

Þessar bækur gætu einmitt verið sniðugar til að lita saman, fullorðnir og börn, og eyða þannig góðum tíma saman. Leyfum Harry Potter heiminum að gera það sem hann gerir best, að sameina kynslóðir á undraverðan hátt.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!