KVENNABLAÐIÐ

Viltu fá ferska og fallega húð?

Prófaðu að búa til andlitsmaska svo þú fáir ferskt útlit og fallega húð.

Gerðu þinn eigin andlitsmaska. Þessi er úr jarðaberjum.

Jarðaberið er fullt af C-vítamíni sem er náttúrulegur hrukkubani.

Þau eru afar góð á bragðið líka og ætti að fá sér jarðaber á hverjum degi. Þú getur tvöfaldað virki jarðaberja með því að bera þau á andlitið á þér tvisvar í viku.

Hérna eru leiðbeiningar um andlitsmaskann.

Þú þarft að eiga blandara

Taktu 1 bolla af jarðaberjum, frosnum eða ferskum. ( einnig má nota fleiri ber, td. hindber og bláber).

Skelltu þessu í blandarann og hrærðu vel

Bættu út í  1 bolla af vanillu jógúrt, má einnig nota hreinan jógúrt

Þegar þetta hefur hrærst vel saman helltu því þá í glas eða krukku og settu eina og hálfa tsk af hunangi saman við. Hunang er meiriháttar góður sem rakagjafi fyrir húðina.

Berðu nú maskann á andlitið á þér og drekktu afganginn.

Þarna eru að fá tvöfalda virkni, innan og utan frá.

Þetta á að gera helst tvisvar í viku.

Heimildir: health.com

Þessi grein er fengin af HEILSUTORG – smelltu HÉR til að lesa fleiri greinar: 

heilsutorg

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!