KVENNABLAÐIÐ

STAR WARS: Óþekkt kvenhetja leiðir æsispennandi stiklu The Force Awakens

Star Wars fer af stað með hvelli, ef marka má útgáfu langþráðrar kynningarstiklu sem fór í loftið nú á mánudagskvöld og sýnir meðal annars kvenhetju, sem segist aðspurð vera enginn.

„Who are you?“ – spyr ósýnileg rödd í upphafi stiklunnar.

„I’m no one“ svarar kvenhetjan unga.

Ríflega þrír áratugir eru nú liðnir frá frumsýningu fyrstu Star Wars myndarinnar, en fjölmargir úr upprunalega hópnum koma fyrir í nýju myndinni, sem ber heitið The Force Awakens og er sú sjöunda í röðinni.

Star Wars: The Force Awakens verður heimsfrumsýnd þann 18 desember á þessu ári, en við höfum ekki fleiri orð um myndina að sinni og klykkjum þess í stað út með sjálfri stiklunni sem segir meira en þúsund orð:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!